Til baka

Hver grípur þig - notaleg stund í Kjarnaskógi

Hver grípur þig - notaleg stund í Kjarnaskógi

Gulur september - fjölbreytt og gjaldfrjáls þjónusta á Akureyri
Hver grípur þig? 💛
Í tilefni af Gulum september tekur fjölbreyttur hópur samtaka á Akureyri höndum saman og bjóða til samverustundar í Kjarnaskógi laugardaginn 5. september klukkan 14.00.

Hver grípur þig þegar á reynir?
Markmið viðburðarins er að skapa rými til að staldra við og eiga notalega stund saman, ásamt því að vekja athygli á fjölbreyttri og gjaldfrjálsri þjónustu sem stendur fólki til boða hér á Akureyri og nágrenni.
Í boði verður:

- Leidd hugleiðsla/skógarbað með Sjálfsrækt.
- Hugvekja frá Séra Sindra Geir.
- Ketilkaffi í boði Skógræktarfélagsins.
- Fulltrúar samtakanna verða á staðnum til að spjalla við og kynna þjónustu sína.

Að viðburðinum standa Aflið, Bergið Headspace, Bjarmahlíð, Frú Ragnheiður, Gley Mér Ei, Grófin Geðrækt, Hjálp 48, KAON, Kvennaathvarfið, Píeta og Sorgarmiðstöð, sem öll bjóða upp á gjaldfrjálsa þjónustu á Akureyri.
Gulur september er tileinkaður vitundarvakningu um geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir. Með viðburðinum viljum við minna á mikilvægi þess að vita hvert hægt er að leita – bæði fyrir okkur sjálf og fólkið í kringum okkur.
Við þurfum öll einhvern sem getur gripið okkur.

Hver grípur þig?

📍 Kjarnaskógur – Birkivellir (fyrir neðan strandblaksvellina)
5. September kl. 14.00.
Kaffi og léttar veitingar í boði.

Sérstakar þakkir viljum við færa Skógræktarfélagi Eyfirðinga, Sjálfsrækt og séra Sindra Geir.
Hlökkum til að sjá ykkur.

Nákvæm staðsetning viðburðar --> https://maps.app.goo.gl/6XUfuhAdEcd542AG6?g_st=ic
Hvenær
laugardagur, september 5
Klukkan
14:00-15:00
Hvar
Kjarnaskógur, Akureyrarbær, Eyjafjarðarsveit, Northeastern Region, Iceland
Verð
enginn aðgangseyrir