Til baka

Hvernig byggð viltu sjá á tjaldsvæðisreitnum?

Hvernig byggð viltu sjá á tjaldsvæðisreitnum?

Kynningarfundur um endurskoðun á deiliskipulagi fyrir tjaldsvæðisreitinn við Þórunnarstræti
Kynningarfundur í Íþróttahöllinni fimmtudaginn 26. janúar nk. kl. 17.
Gengið inn um aðalinngang að sunnanverðu.

Hafin er vinna við endurskoðun á deiliskipulagi fyrir tjaldsvæðisreitinn við Þórunnarstræti með það að markmiði að byggja upp blandaða íbúðabyggð með nýrri heilsugæslu og annarri þjónustu.
 
Á fundinum munu skipulagshönnuðir kynna fyrirhugaða skipulagsvinnu og í kjölfarið verður boðið upp á þátttöku í umræðuhópum.
Í skipulagslýsingu segir m.a.: "Viðfangsefni skipulagsvinnunnar er m.a. að skilgreina uppbyggingu blandaðrar byggðar á svæðinu, almenningsrýma og dvalarsvæða. Skilgreind verða markmið um gæði byggðar, fyrirkomulag gatnakerfis og bílastæða, legu göngu- og hjólastíga, tengingar við nærliggjandi þjónustu, útivistar- og dvalarsvæði ásamt öðrum þeim ákvæðum og skilmálum sem ástæða þykir til. [...] Með gerð skipulagsins er lagður grunnur að hagkvæmri nýtingu lands, blöndun byggðar, vistlegum dvalarsvæðum og almenningsrýmum, góðum tengslum við nærliggjandi umhverfi og þar með umhverfi sem styður við virkan lífsstíl. Skipulaginu er ætlað að stuðla að sjálfbæru og umhverfisvænu skipulagi með heildstæðu yfirbragði í sátt við umhverfi og samfélag."

Öll velkomin – léttar veitingar

 

Hvenær
fimmtudagur, janúar 26
Klukkan
17:00
Hvar
Íþróttahöllin á Akureyri, Þórunnarstræti, Akureyri