Baldvin Ringsted (f. 1974) er fæddur og uppalinn á Akureyri en býr og starfar í Skotlandi. Hann lauk mastersgráðu frá Glasgow School of Art (2007), eftir nám við Myndlistarskólann á Akureyri og Lahti Polytechnic School of Art. Verk hans hafa verið sýnd víða um heim og nýverið hlaut hann önnur verðlaun frá Scottish Landscape Awards fyrir verkið Deluge.
Í sýningunni Hversdagsland / Domestiscape vinnur Baldvin Ringsted með nýja seríu verka þar sem hann notar fundin útsaumsverk til að skapa nýtt landslag. Baldvin er heillaður af sagnamætti hversdagslegra hluta og eiginleika þeirra til að fela í sér minningar og liðna atburði úr lífi fólks. Með því að skeyta þessum brotum saman í heildstæða mynd gefur hann þeim nýtt líf og umbreytir hinu kunnuglega í óvænta og framandi veröld.
Verkin voru að mestu unnin í Skotlandi en kláruð á Íslandi í aðdraganda sýningarinnar. Í þessum útsaumuðum myndheimum, sem byggja á kunnulegum mótívum, má finna bæði skosk og íslensk minni sem fléttast saman.
Baldvin nálgast myndbyggingu sína líkt og tónskáld sem semur verk— hann setur upp ákveðið „handrit“ sem byggir sjaldnast á hreinni tilviljun, heldur á spennunni á milli skipulagðrar uppbyggingar og sjálfsprottins krafts efnanna. Þessi nálgun á sér djúpar rætur í mótunarárum hans innan pönk- og þungarokkssenu níunda og tíunda áratugarins á Akureyri, þar sem hann uppgötvaði hvernig tónlist, myndmál og hljóðminni geta tvinnast saman.
Þótt vönduð handavinna og tæknileg færni séu listamanninum nauðsynleg, þá notar hann fundna hluti til að brúa bilið á milli sköpunar og lifaðrar reynslu. Verkin verða þannig bæði minnisvarðar um liðinn tíma og minningar, en um leið ný veröld sem áhorfendum býðst að stíga inn í. Verkin höfða til augans við fyrstu sýn, en búa jafnframt yfir dýpri hugmyndafræðilegri merkingu um minni, sögu og merkingu þess sem við skiljum eftir okkur.