Í tilefni af Bleikum október hafa systurnar Áslaug og Brynja Harðardætur Tveiten sett upp gluggasýninguna Í bleikum kjól og með hatt á vinnustofu þeirrar síðarnefndu. Sýningin er fyrir alla aldurshópa og er notið utan frá séð.
Glugginn er skreyttur bleikum kjólum, höttum og skóm og eins má sjá gifsbrjóst í gluggakistunni. Um er að ræða afsteypu af brjóstum Brynju sem tekin var áður en brjóstakrabbamein sem hún greindist með árið 2021 var fjarlægt.
Systurnar hvetja öll að líta við og kíkja gluggann eins vekja þær athygli á að föstudaginn 9. október kl. 16–20 verður vinnustofan opin. Þá eru verslanir í bænum með lengri opnunartíma sem er liður í árlegum Dekurdögum. Auk gluggans verður hægt að kíkja á myndlist, keramik og fatahorn – og ekki síst ný píkublóm eftir Brynju úr endurunnu handverki sem kallast Hjartadrottningar.