Til baka

Í hers höndum & Land fyrir stafni, elstu kort af Íslandi - sýningaropnanir

Í hers höndum & Land fyrir stafni, elstu kort af Íslandi - sýningaropnanir

Opnun sýninga um stríðsárin og elstu þekktu landakort af Íslandi

Fortíðin verður í forgrunni á Minjasafninu á Akureyri laugardaginn 6. júní kl. 14 þegar opnaðar verða tvær nýjar sýningar, Í hers höndum og Land fyrir stafni – elstu kort af Íslandi 1507–1600.

Í hers höndum fjallar um veru breskra, bandarískra, norskra og kanadískra hermanna í Eyjafirði í seinni heimsstyrjöldinni. Þann 17. maí 1940 duggaði varðskipið Ægir upp að bryggju á Akureyri, viku eftir hernám Reykjavíkur. Um borð voru 40 sjóveikir hermenn sem hertóku Eyjafjörð. Í kjölfarið fylgdu þúsundir hermanna sem fylltu á fjórða tug herbúða á Akureyri eða í nærsveitum. Dregin var varnarlína um Hrísey og tundurdufl lögð í sjó. Eyjafjörður var sannarlega í hers höndum.

Þetta er söguefni sýningarinnar Í hers höndum sem byggir á ljósmyndum, kvikmyndum og samtímasögum frá hermönnum og heimafólki ásamt munum, kortum og ýmsu öðru. Sögurnar á sýningunni draga upp ólíkan heim hermanna og heimafólks sem stundum verður kómískur í árekstrum framandi menningarheima.

Á sýningunni Land fyrir stafni gefur að líta kort af Íslandi frá 16. öld. Þar er þýskt kort með safnnúmerið 200 sérstaklega áhugavert. Þar gefur að líta elsta þekkta prentaða kort af Íslandi, frá 1507. Merkilegt er að Ísland hafi ratað á kort tæpum 60 árum eftir að prenttæknin ruddi sér til rúms í Evrópu. Guðbrandsbiblía kom ekki út fyrr en 1584.

Sýningin er unnin úr kortasafni sem þýsk hjón Karl-Werner Schulte og Gisela Schulte-Daxbök hafa fært Akureyringum frá árinu 2014 og er nýjasta en jafnframt síðasta gjöfin afhent við þetta tilefni.

Sýningarnar opna Logi Már Einarsson, menningar- nýsköpunar- og háskólaráðherra og Gunnar Már Gunnarsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar.

Á opnuninni verður boðið upp á léttar veitingar og er aðgangur ókeypis.

Hvenær
laugardagur, júní 6
Klukkan
14:00-17:00
Hvar
Aðalstræti 58
Verð
Ókeypis