Til baka

Í Hofi og heim - Tónleikaröð

Í Hofi og heim - Tónleikaröð

Friðrik Ómar & Eik - Beint streymi á mak.is
Í Hofi & heim - Friðrik Ómar & Eik

Menningarhúsið Hof býður menningarþyrstum íbúum landsins upp á tónleikaröðina Í HOFI & Heim í desember og janúar.

Tónleikarnir fara fram á sviði Hamraborgar fyrir framan gesti í sal, fjöldinn takmarkast við gildandi sóttvarnarreglur hverju sinni, en þeim verður einnig streymt á mak.is svo áhorfendur geta haft það huggulegt og notið tónleikanna líka í sófanum heima.

Á þessari tónleikaröð verður kynslóðunum teflt saman. Ungt listafólk frá Akureyri kemur fram með sér reyndara listafólki svo úr verður nýr og forvitnilegur vinkill um leið og kunnuglegheitin eru til staðar. Listafólkið mun flytja bæði þekkt lög og sín eigin svo allir fái að njóta sín.

Á þessum tónleikum munu Friðrik Ómar og Eik Haraldsdóttir koma saman auk þess sem Hallgrímur Jónas Ómarsson spilar á gítar. Söngvarann Friðrik Ómar þekkja allir landsmenn en Eik er 18 ára Akureyringur sem hefur sungið opinberlega frá 10 ára aldri. Hún er að klára framhaldspróf í rhytmískum söng og jafnframt stúdentspróf af tónlistarbraut frá Menntaskólanum á Akureyri. Hún var jólastjarna Björgvins árið 2013 og hefur meðal annars tekið þátt í uppsetningu Leikfélags Akureyrar á Vorið vaknar og Pílu pínu. Eik er að gefa út sína fyrstu plötu í janúar með vini sínum.

Tónleikaröðin Í HOFI & Heim er styrkt af Menningarsjóði Akureyrarbæjar.

Hvenær
fimmtudagur, janúar 14
Klukkan
20:00
Hvar
Menningarhúsið Hof, Strandgata, Akureyri
Nánari upplýsingar