Til baka

Í skugganum - frumkvöðlar í ljósmyndun

Í skugganum - frumkvöðlar í ljósmyndun

Spennandi sýning í Minjasafninu á Akureyri

Sýningin Í skugganum varpar ljósi á fyrstu konurnar sem störfuðu sem ljósmyndarar í danska konungsríkinu á síðari hluta 19. aldar fram á fyrstu áratugi þeirrar 20. Hér eru kynnt í fyrsta sinn verk tíu einstakra kvenna á samnorrænni ljósmyndasýningu.

Yfirskrift sýningarinnar hefur tvíþætta merkingu. Konurnar stóðu í skugganum á bakvið myndavélina en voru oft einnig í skugga karlskyns ljósmyndara síns samtíma. Þannig voru verk kvennanna stundum merkt eiginmönnum þeirra. Konurnar voru hins vegar frumkvöðlar á sviði ljósmyndunar til jafns við karla.

Á sýningunni stíga konurnar út úr skugganum og taka sér rými í sögu ljósmyndunar. Sýningin varpar ljósi á þau áhrif sem kvenljósmyndarar höfðu á þróun ljósmyndunar sem listgreinar og þær aðstæður sem þær unnu við í Danmörku, Íslandi, Færeyjum, Ameríku og dönsku Vestur-Indíum.

Ísland var hluti danska konungsríkisins á þeim tíma sem sýningin spannar og því eru tveir fulltrúar Íslands á sýningunni. Annars vegar Nicolina Weywadt og hins vegar Anna Schiöth sem tók myndir á Akureyri bæði af íbúum en ekki síður af umhverfinu. Ljósmyndir Önnu eru varðveittar á Minjasafninu á Akureyri.

Sýningin var upprunalega sett upp í Museum Østjytland í Randers í Danmörku undir titlinum I skyggen – De første kvindelige fotografer í apríl 2021 og hefur sýningin farið víða um Danmörku.

Sýningin opnar formlega laugardaginn 8. október kl. 15:30. Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, opnar sýninguna og Hörður Geirsson, safnvörður, segir frá myndum Önnu Schiöth.

Hvenær
7. október - 30. desember
Klukkan
13:00-16:00
Hvar
Akureyri Museum, Akureyri