Til baka

Innblástur - Skemmtiatriði

Innblástur - Skemmtiatriði

Skemmtiatriði úr leiksýningunni Innblástur sem er fyrir börn á öllum aldri

Blöðrustarfsmennirnir úr verksmiðjunni Blöðrur ehf. ætla að fara yfir allt það helsta úr blöðruheiminum þegar óvæntar uppákomur velta öllu um koll.

 

Um er að ræða 20 mínútna skemmtiatriði úr fjölskyldusýningunni Innblástur sem hlaut 4 tilnefningar til Grímunnar 2026 - meðal annars sem barnasýning ársins. Atriðið er stútfullt af sköpunargleði, húmor og orku. Atriðið er án alls tals svo tungumálakunnátta setur engin takmörk. Börn á öllum aldri geta skemmt sér og fengið innblástur.

Hvenær
laugardagur, ágúst 29
Klukkan
16:00-16:30
Hvar
MA - Kvos
Verð
Frítt