Í fjórtánda sinn bjóða ÁLFkonur, í samvinnu við Lystigarðinn á Akureyri og LYST kaffihús upp á ljósmyndasýningu við útisvæðið og veitingasöluna í garðinum.
Að þessu sinni takast þær á við hugtakið “innrammað” og túlka myndefnið hver á sinn hátt.
ÁLFkonur er félagsskapur kvenna með ljósmyndun að áhugamáli og hefur starfað saman sem hópur frá árinu 2010
Hópurinn hefur haldið fjölmargar ljósmyndasýningar víða um Akureyri, Eyjafjörð, á Húsavík og í Edinborg Skotlandi.
Að þessu sinni eru þátttakendur:
Agnes H. Skúladóttir, Berglind H. Helgadóttir, Gunnlaug Elísabet Friðriksdóttir, Guðný Pálína Sæmundsdóttir, Hafdís G. Pálsdóttir, Halla S. Gunnlaugsdóttir, Helga H. Gunnlaugsdóttir, Hrefna Harðardóttir, Inga Dagný Eydal, Kristjana Agnarsdóttir, Lilja Guðmundsdóttir, Linda Ólafsdóttir og Margrét Elfa Jónsdóttir.