Íþróttamaður Akureyrar 2019
ÍÞRÓTTAMAÐUR AKUREYRAR 2019
Íþróttabandalag Akureyrar og Frístundaráð Akureyrar bjóða bæjarbúum til athafnar í Hofi miðvikudaginn 15. janúar þar sem lýst verður kjöri íþróttakarls og íþróttakonu Akureyrar.
Dagskrá:
- Hátíðin sett, formaður ÍBA flytur ávarp
- Fulltrúi Frístundaráðs flytur ávarp
- Viðurkenningar vegna landsliðsfólks og Íslandsmeistara
- Heiðursviðurkenning Frístundaráðs
- Kjör íþróttakarls og íþróttakonu Akureyrar árið 2019
- Léttar veitingar
Athöfnin er opin öllum.
Húsið verður opnað kl. 17.00, athöfnin hefst kl. 17.30