Sýning þessi, á Akureyri og í Þórshöfn í Færeyjum, er fyrsta skrefið í samstarfi við systursamtök okkar í Færeyjum, Føroysk Myndlistafólk. Jaaaá, einmitt.
Okkur barst til eyrna að færeyingar kölluðu íslendinga „Jáara“ og við tökum þá á orðinu. Já, já.
Eins og sjá má eru verkin fjölbreytt, hver og einn af 47 þátttakendum syngur með sínu nefi. Við fögnum fjölbreytileikanum, hann er okkar styrkur. Ó, já.
Fimm félagar í Føroysk Myndlistafólk opna síðan sýningu í Mjólkurbúðinni á Akureyrarvöku á næsta ári. Við væntum þess að þetta samstarf muni vaxa og dafna. Já, já, já, já, - ekki spurning!