Jóga og skapandi dans fyrir 4-5 ára börn
Skapandi hreyfistund í jóga og dansi fyrir börn.
Skapandi hreyfistund fyrir 4–5 ára börn þar sem áhersla er lögð á jóga og dans. Börnin fá að hreyfa sig á eigin forsendum, nota ímyndunaraflið og njóta hreyfingar og slökunar í öruggu og jákvæðu umhverfi. Stundin er 45 mínútur.
Viðburðurinn er skipulagður utandyra þar sem við vonumst til að njóta sumarsins saman. Ef veðrið ákveður annað verður viðburðurinn annaðhvort færður um einn dag eða haldinn inni í barnadeild Amtsbókasafnsins. Nánari upplýsingar verða birtar á samfélagsmiðlum.
Kennarar eru Arna Sif Þorgeirsdóttir og Ingunn Elísabet Hreinsdóttir.
Viðburðurinn er styrktur af Listasumri 2026.
Viðburðadagatal Listasumars má finna á listasumar.is