Til baka

Jökulsárgljúfur og Húsavík - töfrar haustsins

Jökulsárgljúfur og Húsavík - töfrar haustsins

Rútuferð og gönguferð með leiðsögn á vegum SBA. Val um lengri eða styttri gönguleiðir.

Dagsferð frá Akureyri sem hentar öllum aldurshópum. 

Lagt af stað frá Akureyri kl. 08:00 og haldið austur að Dettifossi en á leiðinni er stutt þægindastopp í Mývatnssveit. Góður tími til að skoða tvo mikilfenglega fossa, Dettifoss og Selfoss og nánasta umhverfi þeirra. Því næst er útsýnisstopp við Hafragilsfoss áður en haldið er í Hólmatungur en þar hefst um 10 km ganga um undraheima Jökulsárgljúfurs að Hljóðaklettum. Þeir sem kjósa styttri göngu skoða sig um í Hólmatungum og fara svo með rútunni í Hljóðakletta en þar er hægt að velja um nokkar mismunandi gönguleiðir.

Frá Hljóðaklettum er ekið sem leið liggur um Kelduhverfi og Tjörnes til Húsavíkur en þar verður stoppað í tvær klukkustundir. Á Húsavík hafa þátttakendur frjálsan tíma en þeir geta t.d. farið í Sjóböðin eða skoðað sig um í bænum en þar eru margir spennandi veitingastaðir. Áætluð koma til Akureyrar er um kl. 21:00. 

Hvenær
laugardagur, ágúst 28
Klukkan
08:00-21:00
Hvar
SBA Norðurleið - Bus terminal, Akureyri
Verð
7.650 - 15.300 kr. (aldurstengt)
Nánari upplýsingar

www.sba.is