Til baka

Jólasveinar úr Dimmuborgum heimsækja Minjasafnið

Jólasveinar úr Dimmuborgum heimsækja Minjasafnið

Jólasveinar úr Dimmuborgum heimsækja Minjasafnið

English below.
Heyrst hefur að jólasveinarnir úr Dimmuborgum í Mývatnssveit ætli einhverjir að líta við á Minjasafninu á laugardaginn bæði til að skoða á sýningarnar, syngja og spjalla. Ívar Helgason ætlar að stytta okkur stundirnar með jólalögum áður en kapparnir láta sjá sig.

Jólasýningar í Nonnahúsi, Minjasafninu og Iðnaðarsafninu.
Hefur þú séð Verkstæði jólasveinsins sem var í glugganum á Amaro? Eða óþekktu jólasveinana og jólafjallið sem hægt er að gægjast inn í og skoða heimili Grýlu og Leppalúða og barnanna þeirra fjölmörgu?

Söfnin eru opin daglega frá 13-16, en jólasveinarnir birtast um 14:30 ef þeir hafa lært á klukku.

Ókeypis er fyrir fullorðna í fylgd með börnum.

Hvenær
laugardagur, desember 13
Klukkan
14:30-15:45
Hvar
Minjasafnið á Akureyri
Verð
Ókeypis fyrir fullorðna í fylgd með börnum. Annars 1500 kr