Föstudaginn 27. nóvember kl. 20:00 opnar jólasýning í Þúfu 46 við Gránufélagsgötu á Akureyri.
Að sýningunni standa Þúfulyngar, átta listamenn sem starfa í Þúfu 46. Hópurinn er fjölbreyttur og listafólkið hefur ólíkan bakgrunn og vinnur á sviði myndlistar, hönnunar, tónlistar, keramíkur og textíls.
Á samsýningunni verður fjölbreytt úrval listaverka og muna til sýnis og sölu.
Opnun: Föstudaginn 27. nóvember kl. 20:00.
Opnunartímar: Laugardaginn 28. og sunnudaginn 29. nóvember kl. 13–16, auk laugardaganna 5., 12. og 19. desember kl. 13–16.
Staðsetning: Þúfa 46, Gránufélagsgata 46, Akureyri.
Verið hjartanlega velkomin!