Til baka

Jólatónleikar Hvanndalsbræðra

Jólatónleikar Hvanndalsbræðra

Jólatónleikar Hvanndalsbræðra eru löngu orðnir fastur liður í jólahaldi Akureyringa.

Það er löng hefð fyrir því að hljómsveitin Hvanndalsbræður haldi tónleika á Græna Hattinum á annan í jólum, í ár verður engin breyting þar á ! Þetta árið hittir annar í jólum á 26. desember og munu strákarnir henda í öll sín bestu lög ásamt nokkrum vel völdum síðri lögum. Margir líta á þetta sem hið eina sanna jólaboð og mæta gjarnan heilu fjölskyldurnar saman til að gera sér glaða stund, það er því vissara að tryggja sér miða í tæka tíð til að lenda ekki í jólakettinum, það vill engin. Engin!

Hvenær
mánudagur, desember 26
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
4500