Til baka

Jólatorg á Akureyri

Jólatorg á Akureyri

Sunnudagur 22. nóvember - Dagskrá

Velkomin í sannkallaða jólastemningu á Ráðhústorgi 🎄

Jólatorgið verður opið sunnudaginn 22. nóvember kl. 14–17.

Í níu fallega skreyttum jólahúsum verður ýmislegt jólalegt til sölu, auk þess sem hægt verður að gæða sér á veitingum og njóta notalegrar jólastemningar.

Á dagskrá:
Kl. 14–17: Jólalegur varningur og veitingar í jólahúsunum 🎁
Kl. 16: Jólasveinarnir mæta og gleðja börnin með glaðningi 🎅

Kíktu á Jólatorgið og komdu þér í jólaskap!

Söluaðilar helgarinnar:
* Ari Erlingur - handverk m.a. perlumyndir og trémuni
* AntojitosPE - vinsælir réttir og kökur frá Perú og suður Ameríku
* Ögn Icelandic og glansverkstæðið - Bjóða upp á litríka blöndu af skipulagi, endurnýtingu og hlýlegri hönnun. Hjá Ögn Icelandic finnur þú sveigjanlegar dag- og skipulagsbækur (Opin bók) sem auðvelda þér að ná markmiðum þínum, sniðuga gjafavöru og handgerðar pappírsstjörnur frá Paper Starlights sem lýsa upp skammdegið. Glansverkstæðið gefur notuðum skóm og öðrum munum nýtt líf með litríkum glansi – og býður upp á bæði glansaða gripi, efnivið og gjafabréf á skemmtileg námskeið. 
* Myndlistafélagið
* Bryndís Pedersen - leirvörur og kort
* Ketilkaffi
* Eikþyrnir - og Keramik frá Lenu: Eikþyrnir býður upp á sápur úr hreindýratólg og nærandi olíum. Framleitt hér á Akureyri.

LBB keramik er með handunnar gjafavörur búnar til hér á Akureyri. Áhersla lögð á fíngerð smáatriði í hönnuninni.
* Sykurverk Heitt súkkulaði ásamt minni barna skömmtum, amerískur jóladrykkur Eggnog og heimagert jóla-te. Handgerðar, öðruvísi og skemmtilegar jólasmákökur í boxi til að taka heim ásamt stökkum Cookies til að njóta á torginu. Hægt verður að panta ylvolg sæt crêpes til að njóta og einnig hægt að fá sykurpúða eða smáköku á spjóti til að grilla við varðeldinn.

* Knit sisters

 

Upplýsingar um Jólatorgið má finna á www.jolatorg.is
Hvenær
sunnudagur, nóvember 22
Klukkan
14:00-17:00
Hvar
Ráðhústorg, Akureyri