Jón Jónsson og hljómsveit
Jón Jónsson loksins aftur á Græna hattinum ásamt hljómsveit sinni
Eftir alltof mörg ár mætir Jón Jónsson með hljómsveit á Græna hattinn. JJ-band er skapað til að spila í nákvæmlega þessum aðstæðum og eru 99,9% líkur á að kvöldið verði stórbrotið fyrir viðstadda.
Þar sem tónleikarnir eru 29. ágúst er vert* að taka fram að öll eru velkomin; já-arar, nei-arar og allt þar á milli.
Aðspurður segist Jón mjög spenntur fyrir kvöldinu. "Ég er mjög spenntur fyrir kvöldinu," segir Jón, augljóslega mjög spenntur fyrir kvöldinu.
*athugið að það er ekki vertinn, Haukur Tryggvason, að taka þetta fram heldur höfundur kynningartextans.