Til baka

Jónas Sig

Jónas Sig

Jónas Sig og hans frábæra hljómsveit loksins aftur á Græna hattinum
Jónas Sig og hans frábæra hljómsveit verða með tónleika á Græna Hattinum helgina 17. og 18. febrúar. Jónas gaf nýlega út lagið "Faðir" í samstarfi við Lúðrasveit Þorlákshafnar sem hlotið hefur afar góðar viðtökur, fór í efsta sæti vinsældarlista Rásar 2 og fékk góða spilun á öllum helstu útvarpsstöðvum. Með Jónasi í för verða Ómar Guðjónsson, Tómas Jónsson, Arnar Gíslason og Guðni Finnsson.
 
Það er einstök upplifun að upplifa Jónas með hljómsveit á Græna Hattinum. Sú hlýja, einlæga en um leið kraftmikla stemmning sem skapast er eitthvað sem ekki er auðvelt að útskýra enda hefur Jónas og hljómsveit hans verið reglulegur gestur á Græna Hattinum og alltaf einstaklega góðmennur hópur sem gjarnan sækir tónleikana. Jónas og hljómsveit stefna á að hafa frekar hægt um sig á þessu ári þannig að nú er tækifærið að sjá bandið í fullum blóma.
Hvenær
föstudagur, febrúar 17
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
5900