Við verðum þarna vinirnir; Ég, Ómar Guðjónsson, Tómas Jónsson, Arnar
Gíslason og Guðni Finnsson. Það verður að segjast eins og er að við
elskum að spila á Græna og við elskum að hitta ykkur sem komið að hlusta
á okkur og baðið okkur í kærleika og gleði. Mikið verður þetta gaman.
Hafið það sem best þangað til við hittumst og njótið hátíðarinnar með
fólkinu ykkar.
Kær kveðja, Jónas