Gluggasýningin Brúðkaupsveislan stendur yfir í Hafnarstræti 88 dagana 27. ágúst–17. september í tilefni Akureyrarvöku. Þema sýningarinnar er brúðkaup, rómantík og gleði. Listasysturnar Áslaug og Brynja Harðardætur Tveiten standa fyrir sýningunni á vinnustofu þeirrar síðarnefndu.
Til að fagna ástinni og kærleikanum enn frekar eru öll velkomin í óformlegt útibrúðkaup laugardaginn 29. ágúst kl. 15.00. Brúðkaupið er án trúfélags, laga og reglna.
Um er að ræða hópathöfn þar sem hægt er að „giftast“ sjálfum sér og því sem vekur gleði, kærleika og hamingju í lífinu. Athöfnin er hvatning til að fara vel með sig – kærleiks- og viljayfirlýsing um að leggja rækt við sjálft sig og það sem gefur lífinu lit.
Þau sem vilja geta tekið með sér eitthvað táknrænt í athöfnina og klætt sig upp í tilefni dagsins. Hefðbundið í hvítu og svörtu – eða bara það sem hentar skapi, veðri og vindum þann daginn.
Brynja stýrir athöfninni með aðstoð Áslaugar systur sinnar og leirlistakonunum Anitu Guttesen og Hrönn Brynjarsdóttur sem starfa einnig á vinnustofunni.
Athugið að hægt er að mæta hálftíma fyrir athöfnina, útbúa sér brúðarslör á staðnum og fá blóm í barminn meðan birgðir endast.