Til baka

KakóSmakk & KakóSeremónía (18 ára+)

KakóSmakk & KakóSeremónía (18 ára+)

Tveggja daga listasmiðja fyrir súkkulaðiunnendur.
Við hjónin Tinna Sif & Jacob eigum og rekum vefverslunina KakóGull þar sem við bjóðum upp á hreint seremóníu kakó í hæsta gæðaflokki frá hinum ýmsu löndum. Þar má nefna Gvatemala, Ekvador, Perú, Bólivíu og Bali. Hreina kakóið hefur haft virkilega jákvæð áhrif á líf okkar. Við erum því full af innblæstri af þessari ofurfæðu guðanna og öllum þeim ávinningi sem hreina kakóið getur haft á líkama, huga og sál. Við ætlum að deila okkar upplifun, fróðleik og fleiru í gegnum þessa skemmtilegu kakóvinnustofu!
 

Dagur 1 - KAKÓSMAKK & FRÆÐSLA
Mánudagur 4. júlí 10:00-11:30

Í dag fá þátttakendur að bragða á öllum þeim 5 kakótegundum sem í boði eru hjá KakóGull. Það er kakó frá Perú, Bólivíu, Ekvador, Gvatemala og Bali. Þetta er einstök upplifun fyrir öll skynfæri, stund sem súkkulaðiunnendur mega ekki láta framhjá sér fara!
Fyrir þá sem ekki hafa upplifað seremóníukakó áður eða eru súkkulaði aðdáendur þá er þetta kjörið tækifæri til þess að prófa mismunandi kakó sem öll hafa sinn einstaka karakter, bragð og töfra. Stund sem kemur flestum skemmtilega á óvart.
Við hjónin munum fræða þátttakendur um seremóníu kakó, hvaðan það kemur, hvernig vinnslan fer fram, muninn á því og kakódufti, notkun, sögu og fleira.
1 - 1,5 klst.
 
Dagur 2 - KAKÓSEREMÓNÍA
Þriðjudagur 5. júlí 10:00-12:00
Í dag bjóðum við þátttakendur hjartanlega velkomna í innilegt ferðalag en þeir fá tækifæri til þess að taka þátt í kakóseremóníu með okkur og einnig fá hugmynd að því hvernig þeir geti búið til sínar eigin sjálfsræktarstundir.
Kakó plantan getur aðstoðað okkur að fara dýpra inn á við, tengjast og opna hjartað og mæta okkur af mildi, mýkt og kærleika. Ekki er þörf á að hafa neina reynslu, bara opin hug og hjarta.
Hér er tækifæri og öruggt rými til að leggja niður veggina innra með sér og finna öryggið til að skína, hvíla og bara vera.
Hver stund er einstök og fer eftir hópnum sem saman kemur. Okkar seremóníur samanstanda alla jafna af því að drekka saman bolla af seremóníukakói en það aðstoðar okkur við ferðalagið inn á við. Við tengjumst gjarnan við orku tunglsins og bjóðum upp á spurningar sem þátttakendur hafa val um að skrifa um í dagbók eða deila með öðrum í hringnum.
Við leiðum þátttakendur í gegnum áhrifamiklar öndunaræfingar og þaðan inn í hugleiðslu. Hér er tækifæri til að ferðast inn á við og leyfa ásetning að taka festu djúpt í kjarnanum þar sem hann mun fá að vaxa og dafna. Sleppa taki á því sem þjónar ekki lengur og opna fyrir nýja og nærandi orku. Stundin endar svo á slökun.
2 - 2,5 klst.
 

Helstu upplýsingar:

Dagsetning: 4.-5. júlí
Tímasetning: 4. júlí kl. 10.00 - 11.30, 5. júlí 10.00 - 12.00
Staðsetning: Rósenborg, Skólastígur 2
Aldur: 18 ára og eldri
Þátttökugjald:  1.000 kr.
Fjöldi þátttakenda: 10
Skráning: tinnasif@gmail.com / S. 823-0699


Viðburðurinn er styrktur af Listasumri

Hvenær
4. - 5. júlí
Hvar
Rósenborg, Skólastígur, Akureyri
Verð
1.000 kr. - Skráning nauðsynleg
Nánari upplýsingar

Nánar um KakóGull HÉR