Laugardaginn 28. nóvember kl. 16:30 mun Karlakór Akureyrar Geysir stíga á stokk og syngja hugljúf jólalög á hinu árlega Jólatorgi Akureyrarbæjar á Ráðhústorgi.
Jólatorgið er opið þennan dag frá kl. 14:00–18:00 þar sem söluaðilar í skreyttum jólahúsum bjóða upp á jólavarning, handverk og ljúffengar veitingar. Komdu í bæinn, skoðaðu úrvalið í jólahúsunum og hlýddu á hátíðlegan karlakórssöng undir stjórn Eyþórs Inga.
Hvar: Ráðhústorg á Akureyri (Jólatorgið)
Hvenær: Laugardaginn 28. nóvember kl. 16:30 (torgið opið kl. 14:00–18:00)
Aðgangur: Ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!