Til baka

Karókíveisla Karó & Kíkí

Karókíveisla Karó & Kíkí

Kl. 14.00-16.00 - Karó og Kíki bjóða bjóða krökkum að syngja uppáhalds lögin sín í stórkostlegri karókíveislu í Ráðhúsi Akureyrarbæjar.

Karó og Kíki bjóða bjóða börnum að syngja uppáhalds lögin sín í stórkostlegri karókíveislu á sviðinu í Ráðhúsinu á Akureyrarvöku. Hér verður öllu tjaldað til enda snýst þetta fyrst og fremst um að hafa gaman.

Glimmer, glys og glæsilegt ljósashow ásamt ýmsu partýföndri til að stytta biðina eftir sínu lagi. Skráning fer fram á staðnum.

Jenný Lára Arnórsdóttir (Karó) og Rósa Ásgeirsdóttir (Kíki) eru veislustýrur karókíveislu Akureyrarvöku.

Karókíveislan hentar krökkum á öllum aldri.


Viðburðurinn er styrktur af Akureyrarvöku.

 



Hvenær
laugardagur, ágúst 27
Klukkan
14:00-16:00
Hvar
Ráðhús, Glerárgata 9, Akureyri
Verð
Ekkert þátttökugjald