Kodaly – Missa brevis og íslensk kórverk
				
					Missa Brevis eftir Z. Kodály ásamt íslenskum verkum				
				
					Missa Brevis eftir Z. Kodály ásamt íslenskum verkum. Tónleikar með Kammerkór Norðurlands & Hymnodia
Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson
Organisti er Eyþór Ingi Jónsson
Komdu og njóttu fjölbreyttrar tónlistar íslenskra og erlendra tónskálda, þar sem kór og orgel sameinast í hátíðlegum og ljóðrænum tónum. Flutt verður hin mikilfenglega Missa Brevis eftir Zoltán Kodály (1882-1967) en einnig verða á efnisskránni:
Bára Grímsdóttir (1960)
Hjartað fagnar
Sálmurinn um Maríu mey (frumflutningur á orgel)
Eg vil lofa eina þá
Jón Nordal (1926-2024)
Óttusöngvar að vori - Agnus Dei
Þorvaldur Örn Davíðsson (1990)
Tu solus qui facis mirabilia
Verið hjartanlega velkomin í Akureyrarkirkju - kirkju Matthíasar Jochumssonar sunnudaginn 9. nóvember kl. 17:00. Miðaverð er 5000 krónur.