Til baka

Körfuboltapartý

Körfuboltapartý

Körfuknattleiksdeild Þórs stendur fyrir körfuboltapartý í miðbæ Akureyrar.

Haldnar verða skotkeppnir ásamt fleirum keppnum þar sem gestir og gangandi geta tekið þátt og unnið til verðlauna. Leikmenn meistaraflokks karla leika listir sínar og sýna troðslur. Leikmenn kvennaliðs verða á staðnum og kynna starfið á komandi vetri. Skífuþeytir verður á staðnum til að halda upp fjörinu. 

Nánari upplýsingar:
Dagsetning: 26. ágúst
Tímasetning: 14.00 - 17.00
Staðsetning: Hafnarstræti / Göngugatan
Aðgangseyrir: Ekkert þátttökugjald


Viðburðurinn er styrktur af Akureyrarvöku 2023.

Hvenær
laugardagur, ágúst 26
Klukkan
14:00-17:00
Hvar
Miðbærinn, Akureyri
Verð
Ekkert þátttökugjald