Þór tekur á móti Þór úr Þorlákshöfn í 14. umferð Domino´s deildar karla í körfubolta í leik sem fram fer föstudagskvöldið 17. janúar leikurinn hefst klukkan 18:30.
Lárus þjálfari mætir stuðningsmannaherbergið klukkutíma fyrir leik og fer yfir leikinn framundan með öllum á svæðinu.
Almennt miðaverð á leikinn er 1.500 krónur en frítt fyrir 16 ára og yngri.
Miðaverð fyrir nemendur í MA og VMA 1.000 krónur gegn framvísun skólaskírteini.
Kveikt upp í grillinu klukkutíma fyrir leik. Börger og drykkur 1.500 krónur.
Hvetjum stuðningsmenn liðsins að fjölmenna í höllina og styðja liðið til sigurs.
Áfram Þór alltaf, alls staðar