Kristjana og Eyþór - Útþrá
Ljúfsárir söngvar í Akureyrarkirkju
Kristjana Arngrímsdóttir söngkona og Eyþór Ingi Jónsson orgelleikari flytja lög Kristjönu við ljóð eftir Elísabetu Geirmundsdóttur og Davíð Stefánsson, í bland við evrópskar ballöður.
Aðgangur er ókeypis og tekið við frjálsum framlögum.
Öll hjartanlega velkomin!
Sóknarnefnd Akureyrarkirkju, Menningarsjóður Akureyrarbæjar, Héraðssjóður Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis og Menningarsjóður KEA styrkja Sumartónleika í Akureyrarkirkju.