Til baka

Kristnes - Sigurðargil. Gönguskíðaferð

Kristnes - Sigurðargil. Gönguskíðaferð

Gengið á gönguskíðum frá Kristnesi að Sigurðargili.

Kristnes - Sigurðargil. Gönguskíðaferð skidiskidi

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Ingvar Teitsson
Verð: 3.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.


Gengið er upp norðan við skógræktargirðinguna í Kristnesi og stefnt upp að Stóruborg. Greið leið norður á Stórhæð þar sem útsýni er gott. Þaðan hallar svo niður að Sigurðargili þar sem bílarnir bíða. Vegalengd um 9 km og hækkun um 440 m. Selflytja þarf bíla milli Kristness og Sigurðargils.

Hvenær
laugardagur, mars 13
Klukkan
08:00-13:59
Verð
3.500 kr./2.000 kr.