Kröfuganga og hátíðarhöld á Akureyri 1. maí
Kröfuganga frá Alþýðuhúsinu, hátíðardagskrá á Ráðhústorgi, grillaðar pylsur og skátatívolí
13:45 – Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
14:00 – Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar
Hátíðardagskrá á Ráðhústorgi að lokinni kröfugöngu með grilluðum pylsum og skátatívolíi.
Fundarstjóri er Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara
Ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna – Erla Rán Kjartansdóttir, formaður Bandalags kennara á Norðurlandi eystra
Hátíðarræða – Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands
Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir atriði úr söngleiknum Ljóska í gegn
Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri sýnir atriði úr leikritinu Ronja ræningjadóttir
Grillaðar pylsur og skátatívolí að dagskrá lokinni