Til baka

Krummafótur - Grasrótarsviðslistahátíð

Krummafótur - Grasrótarsviðslistahátíð

Grasrótarsviðslistahátíðin Krummafótur stígur á stokk í fyrsta sinn á Akureyri!

Krummafótur er ný grasrótarsviðslistahátíð á Akureyri sem haldin verður í fyrsta sinn dagana 10.-12. júlí 2026.
Markmið hátíðarinnar er að skapa vettvang fyrir ný sviðslistaverk, verk í vinnslu og sjálfstæða listsköpun, auk þess að efla tengsl sviðslistafólks á Norðurlandi og annars staðar af landinu. Hátíðin leggur sérstaka áherslu á að gefa ungu og upprennandi sviðslistafólki tækifæri og vettvang til að sýna verk sín. Það vantar sviðslistargrasrót á Akureyri og það er markmið hátíðarinnar að kveikja í henni.
Sýnd verða verk í Deiglunni, Hlöðunni, heimahúsum og á förnum vegi.
Skipuleggjendur hátíðarinnar eru sviðslistahópurinn Eimyrja.

Frekari upplýsingar má finna á facebook viðburðinum https://fb.me/e/4FfGnOt63 eða á instagram reikningnum @krummafoturhatid

Hlökkum til að sjá ykkur!

-Eimyrja

Viðburðurinn er styrktur af Menningarsjóði Akureyrar. 

Hvenær
10. - 12. júlí
Hvar
Út um allt Akureyri...
Verð
Ókeypis aðgangur