Til baka

Kufungar og skeljaskvísur

Kufungar og skeljaskvísur

Mndlistarsýning Marsibil G. Kristjánsdóttur sem er hefur dvalið í gestalistamannsíbúð Gilfélagsins í janúar, sýnir afrakstur vinnu sinnar. S´ningin opnar kl. 20.20 föstudaginn 27. janúar og er opin bæði laugardag 28. og sunnudag 29. janúar frá 13 - 15 báða dagana.

Marsibil G. Kristjánsdóttir listakona frá Þingeyri opnar listasýningu í Deiglunni á Akureyri föstudaginn 27. janúar kl.20.20. Á sýningunni verða sýnd verk sem eiga sterka tengingu við fjörur Íslands. Síðustu árin hefur Marsbil unnið mikið með þá gersemi sem finna má í fjörunni. Einsog kufunga, skeljar, ígulker, kalkþörunga og hörpudiska. Úr þessum magnaða efnivið hefur listakonan unnið ýmis verk sem verða nú sýnd í Deiglunni. Frá því í lok desember hefur listakonan dvalið í listamannaíbúð Gilfélagsins á Akureyri og þar hefur hún einkum unnið að kufunga- og skeljamyndum. Verða þær til sýnis í Deiglunni ásamt skeljaskvísum hennar er vakið hafa athygli.
Blekbóndinn, leikarinn og eiginmenni listakonunnar, Elfar Logi Hannesson, hefur einnig dvalið í íbúð Gilfélagsins. Hefur hans mánaðarverk verið að stúdera skáldaprestinn Matthías Jochumsson með það fyrir augum að gera jafnvel dúltið leikverk eða eftilvill barnabók um Matta. Við opnunina á föstudagskveld 27. janúar mun Elfar vera með stutt erindi eða öllu heldur Mattador um Matta.
Sýningin Kufungar og skeljaskvísur opnar einsog í upphafi var getið á föstudag 27. janúar kl.20.20. Einnig verður sýningin opin á helginni frá kl.13.00 til 15.00 báða dagana.

Hvenær
27. - 29. janúar
Klukkan
20:20-15:00
Hvar
Deiglan Gilfélagið, Kaupvangsstræti, Akureyri