Kvartett Kristjáns Edelstein heldur tónleika í Lyst í Lystigarði Akureyrar eftir Rökkurró og setningu Akureyrarvöku 2026.
Kristján Edelstein hefur um áratugaskeið verið fremstur meðal jafningja í tónlistarflóru Akureyrar. Hér kemur hann fram með kvartett sem skipaður er tíðum samverkamönnum sem jafnframt telst einvalalið listamanna:
Hljóðfæraskipan:
Daníel Þorsteinsson - hljómborð
Stefán Ingólfsson - bassi
Halldór G. Hauksson - slagverk
Kristján Edelstein - gítar
Ekki missa af þessum einstaka viðburði, rétt eftir upphafsstef Akureyrarvöku í Lystigarðinum!