Til baka

Kvöldsigling í Drangey 1. júlí

Kvöldsigling í Drangey 1. júlí

Sannkölluð ævintýraferð um heillandi náttúru og söguslóðir.

Ferðin hefst á Akureyri, farið með ökuleiðsögumanni til Sauðárkróks en þar er tekið stutt þægindastopp fyrir siglinguna út í Drangey. Eftir að komið er um borð í bátinn er leiðsögn í höndum heimamanna sem gjörþekkja sögu og lífríki eyjunnar.

Reikna má með að ferðin út í Drangey taki um fjórar klukkustundir. Sjálf siglingin er þægileg, tekur 30 mín hvora leið og oftar en ekki láta hvalir og selir sjá sig á leiðinni. Eyjan er einstök náttúruperla í miðju Skagafjarðar, nálægðin við fjölbreytt fuglalífi í bjarginu er mikil og þaðan er frábært útsýni yfir allan fjörðinn.

Áætluð koma til Akureyrar er um kl. 01:30.

Hvenær
föstudagur, júlí 1
Klukkan
17:30-01:30
Hvar
Oddeyrarbót 2
Verð
frá kr. 17.900