Kvöldstund með Begga í Sóldögg.
Hver vill ekki sitja heila kvöldstund og hlusta á Begga í Sóldögg rifja upp ferilinn? Bergsveinn Arilíusson aka Beggi í Sóldögg er flestum unnendum íslenskrar tónlistar kunnugur.
Ferill hans spannar nú yfir 36 ár. Alveg frá því að hann ásamt nokkrum villingum í Breiðholti stofnuðu rappsveit 1988, yfir í The Commitments uppfærslu Fjölbrautarskólans í Breiðholti í Sóldögg, sólóferil, Vini Vors og Blóma og Papana svo fátt eitt sé nefnt. Við erum að tala um 36 ár á böllum, tónleikum, uppfærslum og athöfnum, 130 gigg á ári með Sóldögg fyrir aldamót….
Á Kvöldstund með Begga í Sóldögg fer Bergsveinn yfir ferilinn og flytur öll sín bestu … og næst bestu lög, fer yfir áhrifavalda og rifjar upp sögur af skemmtilegum meðreiðarsveinum af vígvellinum, endalausum sveitaballa hringferðum og tónleikaferðum út um allar trissur. Beggi lætur gamminn geysa og syngur af innlifun með frábæru bandi.
Söngur og sögumaður : Beggi í Sóldögg
Gítar og raddir : Gunnar þór Jónsson
Bassi, Kontrabassi : Jón Ómar Erlingsson
Slagverk og raddir : Eysteinn Eysteinsson