Til baka

Kyrrð í Listasafninu

Kyrrð í Listasafninu

Hugleiðsla með Hörpu Barkardóttur

Laugardaginn 12. desember kl. 11 komum við saman á aðventunni, stígum út úr hversdeginum og inn í heillandi heim Listasafnsins á Akureyri. Rými sem skapað er til að njóta innblásturs og afslöppunar. Við setjumst niður, finnum fyrir líkamanum og leyfum okkur að líða inn í ástand hugleiðslu og slökunar með aðstoð hljóðfæra á borð við gong, kristalskálar og trommu. Í ástandi hugleiðslu gefst einstakt tækifæri til að endurnýja sýn okkar á tilveruna og okkur sjálf í leiðinni. Harpa Barkardóttir leiðir stundina.

Harpa hefur kennt jóga síðan 2009 og rekur jógastúdíó í Helgafelli á Svalbarðseyri. Hún leggur áherslu á kyrrð og dýpt í sinni kennslu. Fyrir henni er jóga og hugleiðsla leið til að endurvekja merkingarbæra tengingu við okkur sjálf, við sálina og náttúruna hið innra og allt um kring.

Stólar og sessur á staðnum. Þátttakendum er velkomið að taka með sér teppi.

Öll velkomin og ekkert þátttökugjald en skráning nauðsynleg á heida@listak.is

Hvenær
laugardagur, desember 12
Klukkan
11:00-12:00
Hvar
Listasafnið á Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir en skráning nauðsynleg