Til baka

Laddi syngur sín bestu lög

Laddi syngur sín bestu lög

Laddi ásamt stórhljómsveit syngur öll sín þekktustu lög.
 
Opinbert Anyone on or off Facebook
Vegna fjölda fyrirspurna hefur verið ákveðið að endurtaka Lögin hans Ladda á Græna Hattinum, en síðast komust færri að en vildu. Lögin sem Laddi hefur samið og sungið í gegnum tíðina skipta tugum ef ekki hundruðum. Lög sem hafa fest sig í sessi í þjóðarsálinni og tengjast minningum um gleði og góða tíma. Hver man ekki eftir lögum á borð við "Flikk Flakk", "Upp undir Laugarásnum", "Gibba Gibb", "Búkolla", "Súperman" og mörgum fleirum.
Hér ætlar Laddi að flytja öll sín þekktustu lög á Græna Hattinum ásamt stórhljómsveit sem sett hefur verið sett saman sérstaklega fyrir þetta tilefni. Um er að ræða einstakan viðburð sem engin ætti að láta framhjá sér fara.

Hljómsveitina skipa ásamt Ladda:
Magni Ásgeirsson: Gítar/Söngur
Summi Hvanndal: Bassi/Söngur
Valur Freyr Halldórsson: Trommur/Söngur
Arnar Tryggvason: Hljómborð/Söngur
Pétur Steinar Hallgrímsson: Gítar/Söngur
Ármann Einarsson: Saxafónn
Valgarður Óli Ómarsson: Slagverk
 
Hvenær
laugardagur, mars 18
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
5900