Til baka

Lagasmiðjur Flammeusar

Lagasmiðjur Flammeusar

Ókeypis lagasmiðjur og samsöngstónleikar á Akureyri (3. apríl)

Komdu í ókeypis lagasmiðjur í Hofi föstudaginn langa þar sem þú klárar lag á einum degi—hvort sem þú ert byrjandi eða með símann fullan af ókláruðum hugmyndum. Þú þarft ekki að kunna tónfræði og þú þarft ekki að syngja ein/n fyrir fullt af ókunnugum.

Um kvöldið hittumst við í Deiglunni og höldum samsöngstónleika þar sem vinir og vandamenn (og gestir og gangandi) eru boðnir velkomnir og við syngjum nýju lögin saman—eins og einn stór kór. Þetta verður hlý, skapandi og skemmtileg upplifun.

Fös 3. apríl | 10:00–16:00 Lagasmiðjur (Hof) | 19:30 Tónleikar (Deiglan)

Skráning (nauðsynleg) á

lagasmidjur.flammeusmusic.com

Hvenær
föstudagur, apríl 3
Klukkan
10:00-16:00
Hvar
Menningarhúsið Hof
Verð
Ókeypis