Til baka

Land fyrir stafni - elstu kort af Íslandi

Land fyrir stafni - elstu kort af Íslandi

Elstu kort af Íslandi sem eru hluti af einstöku safni.
Á sýningunni Land fyrir stafni gefur að líta kort af Íslandi frá 16. öld. Þar er þýskt kort með safnnúmerið 200 sérstaklega áhugavert. Þar gefur að líta elsta þekkta prentaða kort af Íslandi, frá 1507. Merkilegt er að Ísland hafi ratað á kort tæpum 60 árum eftir að prenttæknin ruddi sér til rúms í Evrópu. Guðbrandsbiblía kom ekki út fyrr en 1584.
Sýningin er unnin úr kortasafni sem þýsk hjón Karl-Werner Schulte og Gisela Schulte-Daxbök hafa fært Akureyringum frá árinu 2014 og er nýjasta en jafnframt síðasta gjöfin afhent við þetta tilefni.
Hvenær
6. júní - 4. október
Klukkan
11:00-17:00
Hvar
Aðalstræti 58, Innbærinn, Iceland