Karl-Werner Schulte afhendir Akureyrarbæ nú síðustu kortin í einstakt Íslandskortasafn Schulte, sem varðveitt er á Minjasafninu á Akureyri. Af því tilefni verður boðið til sérstakrar dagskrár á safninu.
Karl-Werner fagnar þennan dag 80 ára afmæli sínu og vildi marka tímamótin með þessari lokagjöf.
Meðal þátttakenda verða Clarissa Duvigneau, sendiherra Þýskalands, og Gunnar Már Gunnarsson, forseti bæjarstjórnar, sem tekur formlega við kortunum fyrir hönd Akureyrarbæjar. Þá kemur Wolfgang Crom frá Ríkisbókasafninu í Berlín sérstaklega til Akureyrar og fjallar um kort eftir Ortelius, sem stundum hefur verið kallað Guðbrandskortið.
Á sýningunni Land fyrir stafni má sjá kort af Íslandi frá 16. öld, þar á meðal elsta þekkta prentaða kortið af Íslandi, frá árinu 1507. Það er merkilegt að Ísland hafi ratað á prentað kort aðeins tæpum 60 árum eftir að prenttæknin kom fram í Evrópu — og löngu áður en Guðbrandsbiblía kom út árið 1584.
Íslandskortasafn Schulte hefur orðið til á rúmlega hálfri öld. Fyrstu kortin voru afhent Akureyrarbæ árið 2014 og safnið telur nú 212 kort frá árunum 1507–1849. Í safninu eru fjölmörg kort sem ekki er vitað til að séu til annars staðar, sem undirstrikar einstakt gildi þess.
Dagskráin hefst kl. 17 og safnið verður opið til kl. 20. Aðgangur er ókeypis og boðið verður upp á léttar veitingar.
Gestir geta einnig skoðað aðrar sýningar safnsins, þar á meðal Í hers höndum, sem opnaði nýverið.