Til baka

Laugardagsleiðsögn

Laugardagsleiðsögn

Sköpun bernskunnar 2026

Laugardaginn 21. mars kl. 15 verður boðið upp á leiðsögn um sýninguna Sköpun bernskunnar 2026. Aðgangur er innifalinn í miðaverði Listasafnsins.

Sýning undir heitinu Sköpun bernskunnar hefur árlega verið sett upp í Listasafninu á Akureyri frá 2015. Markmið sýningarinnar er að efla safnfræðslu og gera sýnilegt og örva skapandi starf barna á aldrinum fimm til sextán ára. Þátttakendur hverju sinni eru skólabörn og starfandi myndlistarmenn ásamt Minjasafninu á Akureyri / Leikfangahúsinu.

Í ár var myndlistarkonunni Sunnu Svavarsdóttur boðin þátttaka í verkefninu. Í verkum sínum opnar Sunna á samtal um hvernig við rötum í gegnum veröldina með skynfærum okkar. Hún vinnur gjarnan með efni og aðstæður sem kalla fram næmni gagnvart því smáa. Í verkunum fléttast saman skynjun, minningar og rými sem hvetja áhorfandann til að staldra við, taka virkan þátt og verða þannig hluti af verkinu.

Skólarnir sem taka þátt að þessu sinni eru leikskólinn Tröllaborgir og grunnskólarnir Brekkuskóli, Glerárskóli, Naustaskóli og Oddeyrarskóli. Í vetur komu skólabörnin í Listasafnið og unnu verk sín fyrir sýninguna undir handleiðslu listamannsins. Lögð var áhersla á margvíslegar skynjanir og listsköpun sem ekki er endilega bundin hinu sjónræna. Börnin fengu að gera tilraunir með áferð, efni, rými og lykt út frá eigin upplifun. Úr því urðu til verk sem byggjast á samspili skynjana, oft með glettnum undirtóni.

Hvenær
laugardagur, mars 21
Klukkan
15:00-15:30
Hvar
Kaupvangsstræti 8, Iceland
Verð
Aðgangur er innifalinn í miðaverði Listasafnsins.