Til baka

Laugardagsleiðsögn

Laugardagsleiðsögn

Andlegar verðmætavindur Magnúsar, S-I-L-I-C-A-0-3 og Sýning um heilagan fugl.

Laugardaginn 30. maí kl. 15 verður boðið upp á leiðsögn um þrjár sýningar; Andlegar verðmætavindur Magnúsar, S-I-L-I-C-A-0-3 og Sýning um heilagan fugl. Aðgangur er innifalinn í miðaverði Listasafnsins.

Myndlistarmaðurinn Magnús Helgason fæddist í Reykjavík 1977, en hefur búið og starfað á Akureyri síðan 2016. Sýningin Andlegar verðmætavindur Magnúsar er tilraun til að leiða orku náttúrunnar sem streymir úr rafmagnsinnstungum Listasafnsins á Akureyri inn í rafdrifin hreyfilistaverk, sem sáldra andlegum verðmætum yfir áhorfendur.

Hulda Rós Guðnadóttir (f. 1973) er starfandi myndlistarkona með menntun í mannfræði og gagnvirkri hönnun auk myndlistar. Hún býr og starfar í Berlín. Í verkum sínum sameinar hún rannsóknarvinnu, myndræna framsetningu og gagnrýna samfélagsskoðun, þar sem aðferðir úr félagsvísindum móta myndræna niðurstöðu.

Örlygur Kristfinnsson fæddist á Siglufirði 1949. Hann nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1969–73. Sýning Örlygs er tileinkuð geirfuglinum og samanstendur af vatnslitamyndum, leirverkum og innsetningum með fjörugripum. Þar birtist geirfuglinn sem táknmynd fyrir óteljandi lífverur, stórar og smáar, sem eru í útrýmingarhættu.

Hvenær
laugardagur, maí 30
Klukkan
15:00-15:30
Hvar
Listasafnið á Akureyri
Verð
Aðgangur er innifalinn í miðaverði Listasafnsins.