Til baka

Laxárdalur í Austur-Húnavatnssýslu.

Laxárdalur í Austur-Húnavatnssýslu.

Laxárdalur er eyðidalur þar sem sagan er við hvert fótmál.

 

Brottför kl. 8 með rútu frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Þorlákur Axel Jónsson.
Ekið að bænum Gautsdal þar sem gangan hefst út dalinn út að Kirkjuskarði. Laxárdalur er eyðidalur þar sem sagan er við hvert fótmál. Fararstjórinn þekkir afar vel til og segir sögur af mönnum og byggð í dalnum en nokkur byggð var í dalnum fram á síðustu öld. Eftir göngu verður komið við í Kúskerpi rétt norðan við Blönduós þar sem Þorlákur stundar skógrækt. Vegalengd 13 km. Gönguhækkun lítil.
Verð: 13.000/15.000. Innifalið: Fararstjórn og rúta.

Skráning á www.ffa.is

Hvenær
laugardagur, júlí 23
Klukkan
08:00-17:00
Hvar
Strandgata 23, Akureyri
Verð
13.000 kr./15.000 kr.