Til baka

Laxárdeilan

Laxárdeilan

Fyrirlestur Benedikts Sigurðarsonar

Árin 1968 til 1974 stóð ágreiningur um stórkarlalegar virkjunarhugmyndir í Laxá í Þingeyjarsýslu - með Suðurárveitu/Skjálfandafljótsveitu og tilheyrandi miðlunarlónum og allt að 60m hárri stíflu neðst í Laxárdal. Virkjun Laxár við Brúarfossa og framkvæmdir við útfall árinnar úr Mývatni á sér rúmlega 90 ára sögu og samhengi. Laxárdeilan var kveðin niður eftir að Þingeyingar sprengdu stífluna i Miðkvísl í ágúst 1970 og sett voru sérlög um „verndun Laxár og Mývatns" árið 1974.

Í erindinu verður fjallað um samhengi Laxárvirkjana og átakanna sem risu um áformað rask með vatnaflutningum úr Skjálfandafljóti. Brugðið er upp myndum innan og utanfrá vettvangi átakanna – og rifjuð upp nöfn leikenda og helstu viðburðir í samhengi seinni tíma.

Benedikt Sigurðarson er eftirlaunamaður á Akureyri. Hann er sérfræðingur í skólastjórnun og fyrrverandi skólastjóri, háskólakennari og framkvæmdastjóri. Benedikt er meðlimur AkureyrarAkademíunnar og vinnur nú einkum að því að rifja upp sögubrot og minningar úr samfélaginu í Mývatnssveit sem hann fæddist inn í um miðja síðustu öld en þar ólst hann upp á bænum Grænavatni og var á unglingsárum þegar Laxárdeilan hófst fyrir alvöru.

Fyrirlesturinn er hluti af viðburðaröð AkureyrarAkademíunnar á þessu ári fyrir íbúa hjúkrunarheimilanna og aðra bæjarbúa. Menningarsjóður Akureyrarbæjar styrkir viðburðina.

 

Öll velkomin – ókeypis aðgangur!

Hvenær
föstudagur, apríl 17
Klukkan
13:30-15:00
Hvar
Lögmannshlíð
Verð
Enginn aðgangseyrir