Til baka

Leðjukrampi - Björn Heimir Önundarson - Sýning

Leðjukrampi - Björn Heimir Önundarson - Sýning

Listamaðurinn Björn Heimir Önundarson sýnir í Kaktus
Opið:
11. júlí 17-19
12. júlí 13 - 17
13. júlí 13 - 17
 
Björn Heimir Önundarson, fæddur árið 1996, er listamaður sem starfar í Reykjavík á sviði málverka, myndasagna, teikninga og teiknimynda. Hann útskrifaðist af teiknibraut úr Myndlistaskóla Reykjavíkur árið 2018, stundaði svo animation-nám í Willem de Kooning Academy og stundar nú nám við myndlist í LHÍ. Í verkum sínum notast hann einna helst við narratífu og frásögn sem má rekja til ástar hans
á teiknimyndum og teiknimyndasögum. Hann dregur ma.a innblástur frá
skopmyndateiknurum á borð við Robert Crumb og Ralph Bakshi, og málurum eins og Philip Guston, Chaim Soutine og Otto Dix. Afbökun og fáránleiki eru hans helstu tól til að snúa upp á veruleikann og draga þannig fram hina sönnu óreiðu mannskepnunnar og sturlun heimsins. Verkin hans eru orkumikil, litrík og óstýrilát. Allt er á stöðugri hreyfingu og ekkert er nokkurn tíma alveg í jafnvægi.
----------------
Viðburðurinn er hluti af listasumri 2026
 
Kaktus er styrktur af SSNE, Myndlistarsjóði, Menningarsjóði Akureyrar og KEA
Hvenær
föstudagur, júlí 10
Klukkan
17:00-19:00
Hvar
Kaktus