Lego bær, settur saman með LEGO settum frá árunum 1978-1994. Þetta tímabil í sögu leikfangarisans er markað af mikilli bjartsýni og rómantík, og hönnun settana ber með sér ákveðna bjartsýni og léttleika sem gerir þau tímalaus og skemmtileg.
Sýningaropnun er klukkan 17:00-19:00 föstudaginn 28. ágúst, boðið verður upp á leiðsögn um sýninguna.
Laugardaginn 29. ágúst verður í boði leiðsögn og fróðleikur klukkan 11:30 og 14:00