Leiðsögn með James Merry
Leiðsögn með James Merry um sýningu hans Nodens, Sulis & Taranis í Listasafninu
Á Akureyrarvöku, laugardaginn 30. ágúst, kl. 16.15 verður boðið upp á leiðsögn með James Merry um sýningu hans Nodens, Sulis & Taranis sem verður opnuð samdægurs kl. 15 í sal 12 í Listasafninu. Leiðsögnin fer fram á ensku.
James Merry er breskur myndlistarmaður sem hefur búið og starfað á Íslandi í áratug. Hann er þekktastur fyrir útsaumaðar grímur og sem tíður samstarfsmaður Bjarkar Guðmundsdóttur í sjónrænni framsetningu hennar. Hann hefur unnið með stofnunum og listamönnum eins og V&A safninu í London, Gucci, Royal School of Needlework, Tim Walker, Tilda Swinton og Iris van Herpen.
Á þessari sýningu má sjá þrjár nýjar andlitsgrímur og er hver þeirra innblásin af ákveðnum rómversk-keltneskum fornleifafundi í Bretlandi. Verkin bjóða upp á samtímatúlkun á skarti valdsmanna frá járnöld og gefa innsýn í hversu heillaður Merry er af þessu sögutímabili sem og því svæði sem hann ólst upp á, í suðvesturhluta Englands. Til sýnis verða upprunaleg verk auk mynda og skrásetningar á sköpunarferlinu.