Til baka

Leikhús-töfrar - Krummafótur sviðslistahátíð

Leikhús-töfrar - Krummafótur sviðslistahátíð

Leikhús-töfrar eftir Odd Klöts og Iðunni Gígju á Krummafót sviðslistahátíð
Oddur Klöts og Iðunn Gígja hafa ákveðið að leggja af stað í örðugt verkefni. Þau ætla að finna hina földu töfra leikhússins. Í leit sinni að leikhústöfrunum þurfa þau að framkvæma 7 alvöru töfrabrögð til þess að komast nær sannleikanum á bak við leyndardómana, og um leið finna svar við spurningunni: Hvar hafa leikhús heimsins töfrum sínum glatað?
Einn hængur er þó á. Hvorki Oddur né Iðunn kunna að gera töfrabrögð. Þau eru hins vegar sannir áhugamenn um töfra og trúa að áhuginn geti borið þau a.m.k. hálfa leið að takmarkinu í leit sinni að leikhústöfrunum. Með öðrum orðum ætla þau að reyna sitt besta og um leið leika sér að mörkum alvöru og leikhúss, og látbragðs og töfra. Niðurstaðan verður sprenghlægileg gamansýning fyrir unga sem aldna, hvort sem þeir hafi óbeit á leikhúsi og töfrabrögðum eður ei.
---------------
Krummafótur er grasrótarsviðslistahátíð haldin 10.-12. júlí 2026. Frítt er inn á alla viðburði. Við hlökkum til að sjá ykkur!
Hvenær
sunnudagur, júlí 12
Klukkan
17:00-18:00
Hvar
Hlaðan - Litla-Garði
Verð
Frítt inn