Til baka

Leirhnjúkur-Reykjahlíð-Hlíðarfjall

Leirhnjúkur-Reykjahlíð-Hlíðarfjall

Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Safnast saman í bíla ef vill. 
Fararstjórn: Grétar Ásgeirsson

Ekið að bílastæði við Leirhnjúk norðan Kröfluvirkjunar. Fyrst er gengið að Leirhnjúk og þaðan er farin stikuð leið til Reykjahlíðar sem fylgir að mestu
hrauninu frá 1727 sem kallast Eldá. Leiðin liggur við suðurrætur Hlíðarfjalls og hægt að hafa viðkomu á fjallinu.

Vegalengd: 15 km. Gönguhækkun: Engin hækkun, en 300 m hækkun ef gengið er á Hlíðarfjall; val um það.
Selflytja þarf bíla á milli Reykjahlíðar og Leirhnjúks.

Verð: 2.700 / 4.400 kr. Innifalið: Fararstjórn.
Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.

Hvenær
laugardagur, júlí 25
Klukkan
09:00-17:00
Hvar
Ferðafélag Akureyrar