Sunnudaginn 12. apríl kl. 9-13 er boðið upp á eins dags námskeið fyrir börn og foreldra.
Skráning nauðsynleg í tölvupósti: elinberglind@icloud.com
Skemmtileg morgunstund að leira, börn og fullorðnir saman. Stutt kennsla í handmótun og hægt að mála hlutina með leirlitum. Leirinn verður síðan brenndur og glerjaður með glæru. Hægt verður að sækja hlutina um viku seinna.
Námskeiðið er styrkt af barnamenningarhátíð og því er aðgangseyrir ókeypis en skráning skilyrði fyrir þátttöku.
Kennari er Elín Berglind Skúladóttir.